Harpa, Ester, Þórdís, Kristín
21.08.2007 21:23:54 / ester

Brúskní brúskna :'D

Mood :  Stressuð en spennt

Lag : Sean Kingstong - Your Sister :P

Orð : Tilviljun.... ég held ekki

Góðan daginn/ kvöldið góða fallega elskulegu íslendingar :P    Jæja þessi síða jafn dauð eins og alltaf og ég jafn lonley þannig að ég og talvan ákváðum að fara að blogga eitt stutt leiðinlegt lonley blogg :P En núna er skólinn byrjarur hjá öllun... Nema Ester :/ Jú skólin byrjar á morgun og hlakka shit mikið til :D Er með fínum krökkum í bekk og bara alles klar :P

En ég er ekki búin að vera að gera mikið , Fór til SWEEDEN <3 vááa þessi ferð vara bara hrein ot tær snilld ;) Krakkarnir þarna sem maður kynntist, leikirnir sem maður spilaði og fötin sem maður verslaði, bara endalaus ást ;)

Svo er ég búin að vinna seinustu vikur eins og mother**** vakna alltaf 7 til að geta tekið þenna fokking strædó og e-ð :/ En svo eru allir að hætta í þessari Hagkaup vinnu, og ég er að pæla að gera það sama ;)

En nenni ekki meira, allveg nó í bili :P

Ester Hermmans kveður :* <3

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.08.2007 14:05:17 / Kristín

NAFLAKUSK

 

Krakkar ! Allir að mæta kl 20:00 í Hljómskálagarðinn í kvöld !!!

Algjör skylda!

Við tökum slagarana 'Pálmundur' og 'Habacrap'
og frumflytjum einnig nýja lagið 'Mads'.

MÆTA MÆTA MÆTA MÆTA

JÁ JÁ JÁ JÁ !!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.08.2007 16:46:40 / þórdís

danmörk

jæja, ég skal þá blogga þar sem ég hef lítið að gera í augnablikinu....

er í danmörku, kongsens köbenhavn... búin að verlsa e-ð smávegis, fara í tívólíið og svo bara fara á milli bara og veitinastaða....

 jáá svo á eftir eða eftir svona 20 minútur er ég að fara að rölta á Parken og fara að horfa á Rolling Stones... vorum einmitt áðan að labba af einum veitingastaðnum og sáum helling af fóllki í kringum e-ð hótel og við bara hmmm hvað er í gangi þarna og svo föttuðum við að hljómsveitin væri þarna og auðvitað náði Þórdís Paparazzi nokkrum myndum... samt frekar svekkjandi að ég var búin að stilla nýju myndavélinni minni upp og beið eftir að þeir kæmu út og þá varð hún batteríslaus! svo ég stal bara pabba og tók nokkrar... kannski að maður hendi þeim inn þegar ég kem heim, en þarf að fara að gera mig til....

 

bestu kveðjur úr köben!


» 12 hafa sagt sína skoðun

20.07.2007 02:15:32 / þórdís

ehhh

mm ég ætla bara að segja ykkur fólkinu sem fer á þessa síðu og sér að það er ekkert að gerast á henni að ég er hætt í henni eða í pásu, mér líður bara illa að fara inná þetta og vita að ég þurfi að gera e-ð á hana :/ nema að síðan bara hætti eins og flestar aðrar síður hafa gert, bloggsíður ekki lengur töff? ég veit ekki....

 

//Þórdís out! well for now


» 9 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 00:54:01 / -stulkurnar-

AFMÆLISBLOGG

Já hún Kolbrún Linda á afmæli í dag
við óskum henni innilega til hamingju með daginn og vonum að maður fari e-ð að sjá hana! hvernig væri ef þú myndir einn daginn mæta á nesið ? :D
TIL HAMINGJU KOLLA :***

» 15 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 12:43:38 / ester

Vinnubeyglur ;)

Lag ; "The Take Over, The Breaks Over" - FOB (L)

Setnig ; AAAAaa Kónugló :/

Múdd ; Gæti ekki verið betra :P

 

Enn eitt leiðinlegt blogg frá manni :/ En ef að enginn annar ætlar að blogg þá bara geri ég það ;)   Harpa hvað varð um bloggin frá þér, verður að koma með eitt ferða blogg fyrir okkur ;)

EN hvað með það... Ég er búin að vera að vinna eins og hálviti sko.. allveg á fullu. Í unglinavinnuni og Hagkaup ;) skemmtilegast að versla :P sjooor ... Fyrir utna vinnuna er ég búin að vera nokkuð dugleg í bílatímunum  eða sorrý ÖKUTÍMUNUM ;) svo í næstu viku fer ég að rúnta með Mömmu&Pabba bara í bílnum, s.s. með ökukennaranum ;D Ekkert smá spenn. Ætla sína þeim hver er besti driverinn ;) múhahaha Orðinn svo góð í þessu,, snillingur í að bakk og leggja ;)

En síðan er það bara Menntaskólinn í Haust !!! vááá það er sko skrítið og ég er pínku stressuð en þetta er sko í fyrsta skiptið í laaangan tíma sem ég hlakka til að fara í skólann :O Því miður fer ég reyndar ekki í Kvennó eins og mig langaði svooo mikið, fólkið þarf veit sko ekki hverjum þau eru að missa af ,, en ég ÆTLA að komast þar inn ! En ég fer bara fyrst í MS :/ allveg ágætur skóli held ég bara .. svolitið leengst útí rassagati fyrir mig en hey.

En hvernig væri stúlkurnar mínar að við færum að hitast bara 4 !! og tökum eitt stúlkukveld ;) Láta vita hvað ykkur finnst. Svo langt síðan ég hef hitt ykkur allar saman :P júnóó :)

En þetta verður ekki lengra ætla að fara að sturtast eða leiðst ;) Alltaf stuð í því:) Vonandi hittir maður ykkur öll í sumar og e-ð ;)

P.S ég á eftir að fá svo feeeeita útborgun vúhúúú ;) hver kemur að shoppa :P

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 22:23:44 / þórdís

AFMÆLISBARN

jæja.. þá er kominn 21. júní og Aldís á afmæli...

 

við viljum óska þeim og öðrum sem eiga afmæli í dag til hamingju með daginn og vonandi verða þeir sem flestir :D 

 mynd af gerpinu eins og hún er vanalega - MASSAKÖGGULL

ELSKUM ÞIG, EIN KANNSKI AÐEINS OF MIKIÐ :D


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 23:36:48 / Kristín

Ein dágóð færsla

Veriði blessuð og sæl öllsömul. Eru ekki allir í ofur skapi þessa dagana? Grunnskólinn að klárast hjá mörgum og sumarið að ganga í garð. Já ég held það sko.

Á þessum seinustu dögum í skólanum gengur voða lítið á og eru þeir frekar tilgangslausir. Samt sem áður er alltaf nóg að gera as usual. Svo má nefna að frá miðvikudeginum seinasta til föstudags fórum við með skólanum í Þórsmörk og var það mikið mikið fjör. Koma inn rúmlega 400 myndir frá því á næstu dögum. Síðan þegar maður kom heim fékk maður samræmduprófseinkunnirnar í hendurnar og var ég bara mjög sátt með minn árangur sem var 8,9 í meðal. Í gleðivímu fór ég að vinna uppá Hróa um kvöldið og síðan til hennar Hrefnu minnar þar sem við gistum nokkur í tjaldi saman. Það kvöld var já.. mjög skemmtilegt og áhugavert. Gleðin stoppaði ekki þar er ég vaknaði hress næsta morgun til að fara í útilegu á kassanum á Húsafell með pabba, stjúpu og Lexxa. Gistum þar eina nótt og mætti síðan kvöldið eftir í vinnuna með systur minni þar sem við erum að þrífa 1x í viku á stórri skrifstofu niðrí bæ. Svona er maður duglegur haa? Tala nú ekki um að ég er komin með þriðju vinnuna fyrir sumarið í siglingaklúbbnum Þyt með nokkrum vinkonum mínum úr Víðó, alls ekki slæmt það.
Síðan var líka auðvitað ákaflega merkilegur skóladagur í dag þar sem við mættum í nokkrar mínútur til að skila nokkrum bókum. Aldeilis þess virði að vakna snemma fyrir það. Eftir það fórum ég og Rúnar heim að elda 4 dýrindis hammara og borðuðum samanlagt ekki meira né minna en 9 frostpinna. Svo fór maður auðvitað bara aftur að vinna í kvöld uppá Hróa eins og manni er best lagið. Núna veist þú frekar vel hvað ég hef verið að sýsla seinustu daga og hrósa ég þér fyrir lesninguna á þessari runu.

Fleira í fréttum er að það styttist í að ég og Harpa förum saman til DK en það verður þann 20.júní sem er bara eftir 16 daga. Eitthvað lengra er í að Dísurnar 2 fari saman út en þær stöllur eru svo heppnar að vera að fara til London seinna í sumar. Einnig er Rúnar að fara til London núna á fimmtudaginn til hans Arnórs sem er svo heppinn að vera þegar kominn út og vera búinn í skólanum.

Já gott fólk, grunnskólinn er að enda hjá okkur mörgum. Á morgun hjá Álftanesskólaplebbunum en á miðvikudaginn hjá okkur Víðóliðinu, þó svo að seinasti skóladagurinn sé á morgun. Það er nú gaman að komast í menntaskólann en um leið leiðinlegt að vissu leyti að kveðja grunnskólann og allar minningarnar þaðan. Núna er bara um að gera að halda sambandi við fólkið og sækja um í menntó sem allra fyrst. Sjálf set ég MH í fyrsta og Flensborg í annað.

Endilega látiði í ljós hér í skoðunum í hvaða skóla þið ætlið að sækja um.

Bless og bæ, þar til seinna, hittumst heil.

 

Víðó merkið
Spect
Hahahahahahaaha vááááá þetta er bara beeeeesta mynd sem til er!!!!
Stærðfræðikennararnir okkar megaflippzerz
..Smá preview af Þórsmerkurmyndunum

» 15 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 03:19:53 / þórdís

bara ómerkilega ég... aftur!

núna eigum við krakkarnir eftir að mæta 2 sinnum í skólann og svo á skólaslitin, pælið í þessu 10 ára vinna er loks að skila sér.

en já við fengum útúr samræmdu á fimmtudaginn, ég náði öllu og er með 6,5 í meðaltal. Kristín rúllaði þessu samt upp! með e-ð 8,9 í meðaltal! til hammó!

en jáá svo í gær voru e-rjar stelpu að fara að gista í tjaldi hjá Hrefnu en ég og Aldís nenntum því engann veginn vegna veðurs.
svo við fórum e-ð með Sævari að rúnta, rúntuðum og rúntuðum stoppuðum tvisvar uppí Egillshöll á e-rju lanmóti. Í seinna skiptið tókum við farþega með okkur.
en já við bara rúntuðum og ekkert annað, kom svo heim e-ð um 4, hálf 5...
fór bara að sofa, steinsofnaði strax!
vaknaði, gerði mig til fyrir vinnuna og fór til Ester, vá ein manneskja getur verið lengi að taka sig til!
við sóttum Hafrúnu og fórum að vinna, hundleiðinlegt, mikið að gera og heitt!!!

en já svo eftir vinnu fór ég heim í sturtu og ætlaði að gera e-ð skemmtilegt í kvöld en NEEEEEI enginn nennti að gera neitt eða var upptekinn og ég gat ekki verið með :( jáá ég fór e-ð til Hafrúnar/Andra ekkert að gera þar og svo fór ég til Hörpu, þar voru Viktoría og Hrefna. Hrefna fór stuttu eftir að ég kom, Viktoría þar á eftir og Harpa sofnaði svo ég fór bara... haaa? skemmtilegt er þaggi!?
svo ég fór heim og þar var enginn heima svo ég hringdi í múttu og þá fór hún í e-rja heimsókn í næstu götu og er ekki komin heim :/

hún skammar mig fyrir að koma seint heim en hún kemur líka of seint heim! ég skil þetta ei!

já ég kannski segi þetta gott og segi bara gleðilegt sumarfrí og góða skemmtun :D

 

en já gaman að segja frá því að eftir 66 sólahringa er ég að vakna og fara útá flugvöll með Aldísi og fleirum. búin  að panta flugið, hótelið og allt! :D :D :D


» 10 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 13:38:29 / þórdís

æðislegur skóladagur...

mér finnst bloggið hennar Ester leiðinlegt og vildi aðeins ferska uppá þetta :D

 en já ég nenni ekki að segja frá helginni minni, hún var e-ð löng og spes.

útskriftarveisla, rúntur, tjill, og heimsókn frá systur og manninum hennar. :D

en já ég nennni ekki að segj afrá því og ætla bara ða segja frá þessum ömurlegaskóladegi mínum!!!

ég er samt ennþá í skólanum og verð það næsta klukkutímann að gera ekki neeeeeeeiiiittt! við megum ekki fara en höfum ekkert að gera. 

jááá við mættum klukkan átta-fimmtán eins og alltaf og fórum að vinna í verkefninu.

mér finnst þetta verkefni bara drepleiðinlegt, held svona að flestum finnist það líka nema kannski Aldís, hún elskar e-ð svona tilgangslaust rusl.

en jáá hérna sitjum við nokkur í sófanum frammi, ég að blogga, Harpa og Grímur í e-rjum leik, Grímur var btw að tapa, en já Kiddi er á milli þeirra að leiðbeina þeim og svo er Bjarni kominn í leikinn líka. Beta og Ester eru líka e-ð að nördast... mega fjöööör!! (Y)

held ég ætli bara að hrósa skólanum mínum fyrir asnalegt, tilgangslaust verkefni til að eyða seinustu dögunum okkar í Grunnskóla í eitthvað rugl! Smart choice! :D

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 10:08:11 / ester

Flippi Flippersen

Lag : who nó ?? :/

Word : Hvar er dótið mitt Drífa :?

Múd : Svooo breytilegt ;)

hallúú,, miss Flippersen hérna ;) jæja þá er komið að enn einu blogginu frá the blogg master (rigturinn) En þá eru bara tvö próf eftir Þýska und Franska j'amie le france (L) svo góð í þessu tíhíhííh...

 

stuuuð hjá manni :P

En svo er það elskulega helgin mín ;) Föstudagurin var þannig að uuu,,, man ekkert hvað ég var að gera er með gullfiska minni :/ júuu ég fór í sund með Urði og fór síðan út um kveldið all svaðalegt stuð :/

Laugardagurinn var þannig að ég fór að shoppa með múttu sætu minni og ég keypti afmælisgjöf fyrir Hörpu mína :** betra seint en aldrei ;) Svo fór ég að passa og var í 10 tíma !!!! komin heim e-ð um 3 og hefði ég ekki farið að passa ætlaði ég á tónleikanna þó að ég veit eeekkert hvað gaurin hét Darú e-ð or sum :/ ein manneksja var all svaðaleg að suða í manni að koma eeen eins og alltaf er maður beiler :/;)

Síðan kom sunnudagurinn geeeðveiki ;) Kom auðvitað of seint í vinnuna útaf sumir *hóst Þórdís hóst* vöknuðu of seint og kenndi hún mér um af því að ég hringdi ekki nógu snemma :):/ En það var geggt gaman í vinnuni eins og alltaf hjá mér ,, Sigrún ný byrjuð og komin alveg á fullu hérna ;):P Svo í kaffinu mínu fór maður að shjoppa smá meira :) keypti mér kjól/bol sem eg eeelska (L)

Síðan er það dagurinn í dag :) Núna er ég í skólanum og er að gera e-ð fyrirtækjaverkefni sem er rugl en alveg fínt af því að við erum ekki að gera neitt svaðalega mikið, þá gefst tími fyrir að bloggast like núna ;) úúúu svo er ég að fara að vinna aftur á dominso's :) jeijjj hlakka geggt mikið til :) og ef að ég vinn 5 daga á domino's þá fæ ég frítt fyrir 2 á Ruby thuesday (hvernig sem það er skirfað). Er að fara að vinna um helgina og á miðvikudaginn, (á dominos) svo er ballið líka á miðvikudagin. Og á þriðjudaginn er bílatími númer 2 orðin úber góð í þessu :) Bara very bissý ladý:P En núna er komin tími til að hætta ;) verð að vera dugleg í þessu verkefni :) bæjóó :**

 

 endum á einni emo :) Þórdís ég og Kristín

» 10 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 11:28:53 / -harpa-

Bwahahahahhaha!!!!!!!!!!

 

Krakkar, fariði inná þennann link inná barnalandi.is http://barnaland.is/messageboard/messageboard.aspx?advid=2259933&advtype=52&showAdvid=2259933#m2259933

 

.... ég var að vinna þetta skemmtilega verkefni í tíma og þurfti að finna góðann vask til að kaupa fyrir fyrirtækið mitt og datt þá í hug að fara inná barnaland og athuga hvort það væri verið að auglýsina vask, og skrifaði í leit, vaskur til sölu og þá kom þetta... Ég gjörsamlega sprakk :D tjékki endilega á þessu :lol: 


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 00:18:17 / -stulkurnar-

Á Slúðrið að hætta????

 

Jæja, ég er að hugsa hérna, á Harpa að hætta að slúðra eða ekki ?

Hvernig væruð þið að fýla það ???

Segjiði skoðun ykkar og nafn í comment og Ég sé til hvað ég geri eftir því hve margir commenta :D:P

-ég held þið mynduuð ekki án þess geta verið!

 

 

OKAY??? 

 

 

 

 

 


» 22 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 19:03:28 / Kristín

Próflok og svona skemmtilegheit fattarö

Heyrðu jááá, það kom hérna tilkynning ofar um að ég mundi blogga innan tíðar. Mér dettur nú í hug að það hafi verið ritað af henni Dísu Skvísu en ég er akkúrat vel lögð í að koma með eina færslu hérna í dag.

Eins og flestir vita þá eru samræmdu prófin loksins búin en það er það sem hefur drifið seinustu daga flestra 10.bekkinga um land allt. Eins og flestir er ég gífurlega fegin að þeim kafla er lokið og gekk mér alveg ágætlega. En í gær fóru einnig margir 10.bekkingar í próflokaferð og var Víðó þar ekki útundan. Við fórum í river rafting í Hvítá sem var klárlega einn af þeim skemmtilegri hlutum sem ég hef gert. Var ég þar í báti með Hlín, Sonju, Rúnari, Reyni og Gumma og stukkum við einnig öll niður 6 metra háan klett út í Hvítá sem var líka alveg ótrúlega skemmtilegt. Eftir það var grillað og síðan haldið í sund í bænum Selfossi. Þar á eftir fórum við í Kaldársel og gistum þar nóttina. Það var líka bara mega fjör og fórum við í herberginu okkar flest ekki að sofa fyrren um 6 leitið en þeir sem voru í því herbergi voru Sonja, Hlín, Eyrún Fríða, Eyrún Þrastar, Ásta, Gugga, Bára, Sævar og Davíð Arnar sem ég deildi rúmi og svefnpoka með um nóttina. Þar sem við vorum í stuttri fjarlægð frá heimabæ okkar Hafnafirði, tók ekki langan tíma að keyra heim í dag en við vorum komin um 11 leitið. Eins og margir, get ég ímyndað mér, fór ég heim og svaf frá 12 til 4. Ætlaði nú að fara í bæjinn með Víðó stelpunum í dag en ég sem sagt missti af strætó er ég svaf föstum svefni.

Næstu dagar ættu að vera über skemmtilegir þar sem prófin eru búin og í maí verður ekkert gáfulegt gert í skólanum sem mér líst ágætlega á. Tökum þ.á.m. tvo daga í starfskynningar en við stelpurnar í Víðó ætlum að fara á útvarpsstöðvarnar X-ið 97.7 og FM 95.7 og verður það heldur betur áhugavert. En ef við erum að tala um þá daga sem styttra er í þá er ég að fara að vinna frá næsta föstudegi-mánudags en maður getur náttúrulega gert margt annað á þeim dögum líka. Ætlaði að fara annaðhvort í bíó eða að lita hárið á Sonju með Víðó stelpunum í kvöld en hvorugt virðist ætla að standast þar sem ég er að fara út í Garð til frænda og eitthvað álíka frábært. En til að gefa smá tips hérna þá mæli ég með myndinni Blades Or Glory en ég fór á hana um daginn með Rúnari og Reyni og er þessi mynd framúrskarandi fyndin og skemmtileg. Síðan er auðvitað horflugu/duplo lokaballið í Víðó þann 23. maí næstkomandi. Ég er búin að skrá nokkrar stelpur hérna af nesinu en ef fleiri vilja koma þá verðiði að drífa ykkur að tala við mig því ég þarf að ljúka þessari skráningu sem fyrst. Segðu það bara í comment hérna ef ég á að skrá þig.

Og folks, STAY TUNED því þessi síða mun rjúka upp úr dauða sínum á næstu dögum þar sem við munum ekki vera fastar í lærdómi eins og seinstu daga. Ég býst við bloggi frá einni af Álftanesstúlkunum um próflokaferðina þeirra, helling af nýjum myndum frá mér og slúðri er hinar snúa til baka því þú veist, ég nenni því ekki.

BLESS OG BÆ.

 


Fjör í Litlu-Björk!  5000 kall klukkutíminn, hver er með mér?

 


» 15 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 10:50:21 / þórdís

HAHAHAH

ég er búin með samræmduprófin :D:D:D:D

» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4